144. löggjafarþing — 62. fundur,  3. feb. 2015.

fjárfestingarsamningur við Thorsil ehf. um kísilmálmverksmiðju í Helguvík í Reykjanesbæ.

420. mál
[19:31]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Það er gleðilegt að hæstv. ráðherra hafi aftur tekið hv. atvinnuveganefnd í sinn milda náðarfaðm og geri ekki tillögu um að málið fari neitt annað. Ég fagna þessu máli, ég styð það að við beitum fjárfestingarsamningum af þessu tagi til þess að reyna að ná erlendri fjárfestingu til Íslands. Það er engum vafa undirorpið að þetta tiltekna verkefni sem hefur lengi verið á döfinni mun verða kærkomið á Suðurnesjum og vonandi verður af því.

Ég hjó eftir viðtengingarhættinum sem hæstv. ráðherra notaði. Hún orðaði það með þessum hætti: Nái verkefnið fram að ganga.

Mig langar til að spyrja hæstv ráðherra hvort einhver áhöld séu um það. Er þetta verkefni ekki bara á býsna góðu skriði? Hvað gæti leitt til þess að svo yrði ekki?

Af því að mér er annt um Suðurnesin og man margt af því sem hæstv. ráðherra hefur sagt, þá langar mig í framhjáhlaupi til að inna hana eftir öðru verkefni. Það hlaut líka náð fjárfestingarsamnings, sem ég dró á sínum tíma nánast á hárinu í gegnum þá ágætu ríkisstjórn sem ég sat í, eins og hæstv. forseti man eftir. Þegar hæstv. ráðherra tók við embætti talaði hann með þeim hætti að það væri einungis sleifarlag síðustu ríkisstjórnar sem ylli því að Helguvík var ekki komin á neina hreyfingu.

Mig langar til þess að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað er að frétta af Helguvík? Og í öðru lagi: Er hún enn þá þeirrar skoðunar að það hafi verið sleifarlag síðustu ríkisstjórnar sem olli því að Helguvík fór ekki af stað eins og að minnsta kosti vonir mínar stóðu til?