fjárfestingarsamningur við Thorsil ehf. um kísilmálmverksmiðju í Helguvík í Reykjanesbæ.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og fyrir þann stuðning sem mér heyrðist hann koma með við þetta ágæta mál, og þá von sem ég hjó eftir að býr í brjósti hv. þingmanns um að verkefnið nái fram að ganga.
Viðtengingarhátturinn var kannski einmitt vegna fyrri reynslu: Nái þetta verkefni fram að ganga. Ekkert bendir til annars en að verkefnið sé á góðu skriði. Miðað við þær fregnir sem forsvarsmenn fyrirtækisins hafa fært mér er málið á góðum rekspöl og vona ég að við náum að afgreiða frumvarpið hratt og vel í þinginu þannig að ekki verði við okkur að sakast ef málið tefst. Ég hef enga ástæðu til þess að ætla það.
Varðandi álverið í Helguvík þá eru það mér vonbrigði að við skulum ekki vera búin að ná niðurstöðu um það. Ég tel að nokkrir samverkandi þættir á sínum tíma hafi orðið til þess að málið stöðvaðist og er enn fast. Það eru að sjálfsögðu þeir samningar sem þurfa að nást á milli orkufyrirtækisins og fyrirtækisins en einnig voru ákvarðanir teknar af hálfu síðustu ríkisstjórnar, ég nefni sameiginlegt umhverfismat suðvesturlína sem gert var á mjög viðkvæmum tímapunkti og varð til þess að ýmsar ákvarðanir töfðust og hafa ekki enn þá verið teknar. Ég gagnrýndi það þá og hef tryggt að ekkert slíkt stöðvist á okkar borði sem tafið gæti verkefnið.