fjárfestingarsamningur við Thorsil ehf. um kísilmálmverksmiðju í Helguvík í Reykjanesbæ.
Herra forseti. Ég á ekkert nema góðar óskir til handa hæstv. ráðherra að því er þetta verkefni varðar og öllum þeim sem á Suðurnesjum búa. Ég get fullvissað hana um að þó að ég sé fullkomlega áhrifalaus í þessu þingi og sitji bara í utanríkismálanefnd muni ég að minnsta kosti leggja mitt af mörkum til þess að þetta frumvarp og þingmál nái fram að ganga sem fyrst. Ég sé enga annmarka á því ef það er í gadda slegið að það brjóti ekki í bága við Evrópureglur og ef GBER sjálfur er nú ánægður með það þá ætti það að ganga. En við höfum auðvitað brennt okkur á því að ESA er mjög erfitt viðureignar og ekki alltaf hallkvæmt Íslendingum, finnst mér.
Svo vil ég nota þetta tækifæri til þess að segja við hæstv. ráðherra að orð eru alltaf dýr. Hæstv. ráðherra fór mikinn hér í stjórnarandstöðu út af Helguvík og hélt því áfram eftir að hún varð ráðherra. Ég rifja það sérstaklega upp að hún fór í viðtal í Víkurfréttum þar sem mátti skilja á henni að nú yrðu hendur látnar standa fram úr ermum og nú mundi Helguvík rísa, það var nánast það sem hún sagði, og skapaði miklar væntingar hjá Suðurnesjamönnum. En ekkert hefur gerst í málinu. Það kann vel að vera að hæstv. ráðherra vilji skella skuldinni af því á ákvörðun um hið sameiginlega umhverfismat, en hún veit jafn vel og ég að það er ekki ástæðan, því miður. Ég hef mínar skoðanir á því hver ástæðan er en ég ætla ekkert að fara út í það og það er engum til góðs. En ég ætla bara að nota þetta tækifæri til að segja það við hæstv. ráðherra, að menn eiga að spara sig stundum, sérstaklega ef þeir vita betur.