uppbygging innviða fyrir ferðamenn til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Samkvæmt lögum um Vatnajökulsþjóðgarð er þar stjórn sem sett er saman með nokkuð óvenjulegum hætti, þ.e. með aðkomu sveitarfélaganna o.s.frv. og sú stjórn hefur þegar gert verndaráætlun sem er uppbyggingaráætlun fyrir Vatnajökulsþjóðgarð. Þar er auðvitað ákveðin sýn og ákveðin forgangsröðun o.s.frv. Ég spyr um stöðu þeirrar verndaráætlunar gagnvart þeirri forgangsáætlun sem hér er kynnt til sögunnar og hvort fara þurfi í breytingar á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð eða í eitthvert sérstakt og skilgreint samráðsferli við stjórn þjóðgarðsins hvað þessa forgangsröðun varðar.
Hið sama vil ég spyrja um varðandi Þingvallaþjóðgarð, þ.e. samstarfið við Þingvallanefnd sem hefur mjög skýrt hlutverk og skýrt verkefni samkvæmt lögum. Ég sé ekki alveg nákvæmlega hvernig það samspil á að vera.
Fram kom í máli hæstv. ráðherra að hún segir að rétt sé að leita til Náttúrufræðistofnunar, sem sé náttúrlega sá þekkingarbakhjarl sem ráðherra nýtur í starfi sínu. Ég sakna þess að aðkoma Náttúrufræðistofnunar sé ekki skilgreind með neinum hætti þar. Þá vil ég líka nefna náttúrustofurnar sem stundum hefur borið á góma hér.
Svo spurði ég hæstv. ráðherra í fyrra andsvari mínu um gjaldtökuheimild landeiganda í samræmi við 8. gr. og bið hæstv. ráðherra um að reyna að koma að því í síðara svari sínu.