144. löggjafarþing — 62. fundur,  3. feb. 2015.

uppbygging innviða fyrir ferðamenn til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.

427. mál
[20:25]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil nú í grundvallaratriðum fagna þeirri viðleitni sem kemur fram í frumvarpinu en lýsi áhyggjum yfir nokkrum þeim atriðum sem þegar hafa komið fram í samskiptum mínum við hæstv. ráðherra hér í andsvörum, þ.e. nokkrum málum sem ekki eru samkvæmt frumvarpinu til lykta leidd.

Í fyrsta lagi að því er varðar samspil þessarar áætlunar við umboð og verksvið þjóðgarðanna sem eru með óvenjulegt stjórnfyrirkomulag, þ.e. annars vegar Vatnajökulsþjóðgarður sem hefur stjórnfyrirkomulag eins og það sem kom fram í mínu andsvari og byggir á aðkomu þeirra sveitarfélaga sem land eiga að þjóðgarðinum. Stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins tekur mið af forgangsröðun þessara sveitarfélaga sem þeir síðan gerðu tillögu um til ráðherra og ráðherra hefur þegar staðfest, þ.e. sýnin að því er varðar uppbyggingu þjóðgarðsins. Þessi stjórnar- og verndaráætlun hefur gildi reglugerðar og ráðherra nálgast það ekki með neinum hætti í frumvarpinu, þ.e. hvernig samspilið er milli þessarar áætlunar og stöðu hennar og þess frumvarps sem hér er lagt fram.

Það sama gildir um samspilið við Þingvallaþjóðgarð; við sitjum raunar báðar, ég og hæstv. ráðherra, í Þingvallanefnd. Þingvallanefndin hefur skýra stöðu gagnvart Þingvöllum og þeim lögum að því er varðar einmitt forgangsröðun verkefna.

Síðan er það svo, sem kom ekki fram í andsvari mínu, að Umhverfisstofnun hefur á undanförnum árum — það hófst minnir mig árið 2010 — hafið flokkun friðlýstra svæða sem eru í umsjá stofnunarinnar eftir stöðu svæðanna. Þetta hefur stundum verið kallað flokkun rauðlistasvæða þar sem þau svæði sem eru í mestri hættu að mati Umhverfisstofnunar, vegna ágangs eða annarrar þeirrar ógnar sem að þeim steðjar, eru flokkuð í rauðan flokk; þau sem eru í hættu en þó ekki eins mikilli í appelsínugulan flokk; síðan gulan og loks í grænan þau sem eru örugg samkvæmt úttekt og flokkun Umhverfisstofnunar. Þessi rauðlistasvæðaflokkun hefur síðan verið notuð sem stuðningstæki til þess að forgangsraða fjármagni sem Umhverfisstofnun hefur á sínu borði til að þjóna sem best verndarhagsmunum þeirra svæða sem undir eru.

Þetta er til marks um það — það sem ég hef hér farið yfir — að sérhver þessara þriggja stofnana, Þingvallaþjóðgarður, Vatnajökulsþjóðgarður og Umhverfisstofnun, hefur haft sinn háttinn á í því að forgangsraða svæðum, flokka mikilvægi verkefna o.s.frv. Í frumvarpinu skortir á að það sé skýrt skilgreint hvert samspil þessara áætlana er við lögin þegar og ef þau síðan taka gildi.

Ég sakna þess í svörum hæstv. ráðherra við andsvörum mínum og líka í ræðu hennar að þarna væri skýrt kveðið á um hver vilji og sýn ráðherrans væri í því máli. Nú fer þetta mál til þingsins eins og önnur mál sem borin eru fram af ráðherrum, en þetta mál er, að mínu mati, hvað þetta varðar ekki fullburða.

Hæstv. ráðherra sagði í andsvari við mig áðan að Náttúrufræðistofnun hefði enga stöðu samkvæmt lögum gagnvart þessu máli. Það er náttúrlega þannig að við erum hér einmitt að setja lög, þannig að ráðherrum er í sjálfu sér í lófa lagið að skilgreina stöðu Náttúrufræðistofnunar gagnvart því þingmáli sem hér er til umræðu. Ég tel mikilvægt, og mundi gjarnan vilja heyra viðbrögð ráðherrans í lokaræðu hér, að það liggi fyrir að vistgerðarflokkun og skráning Náttúrufræðistofnunar sé grundvallarplagg. Því ef þetta mál á að vera í þágu náttúruverndar verður það að byggja á þeirri vísindalegu þekkingu og þeim grunni sem þar er fyrir hendi en ekki fyrst og fremst nýtingarsjónarmiðum ferðaþjónustunnar. Þetta er afar mikilvægt og ekki síst í ljósi þess, sem kom fram í framsögu hæstv. ráðherra, að markmiðið með þessu máli á að vera sjálfbærni, þ.e. að ekki sé gengið á landið meira en svo að því sé skilað jafngóðu eða betra til komandi kynslóða.

Það væri gott ef við sæjum jafn vel í þessu máli — það er þá eitthvað sem nefndin getur tekið til skoðunar og væri gott að heyra viðbrögð ráðherra við — að nefndin skilgreindi í þessu frumvarpi einhvers konar sjálfbærniviðmið eða að minnsta kosti hvernig þau yrðu samansett fyrir þá auðlindanýtingu sem ferðaþjónustan er sannarlega. Því það er mikilvægt fyrir auðlindaráðuneyti að hafa skýra sýn og metnaðarfullan vilja til að skilgreina þau viðmið fyrir þessa nýju, öflugu og vaxandi atvinnugrein sem, ef henni eru ekki reistar skorður, hefur tilhneigingu til að ganga á þær dýrmætu auðlindir sem náttúra landsins er.

Mig langar aðeins að víkja að kostnaðarumsögn fjármálaráðuneytisins þar sem fjármála- og efnahagsráðuneytið vekur athygli á veikleika í frumvarpinu. Það er mikilvægt fyrir okkur að horfa til þess — og ráðherra ræddi raunar aðeins í framsögu sinni að við þyrftum að vera minnug þess að fjárveitingavaldið og fjárlagavaldið væri hjá þinginu og það ætti allt eftir að koma í ljós hversu mikið félli til o.s.frv. — að áætlanir af þessu tagi mega sín mjög lítils ef þeim fylgir ekki fjármagn, ef þeim fylgir ekki mjög skýr sýn að því varðar raunverulegan vilja. Raunverulegur pólitískur vilji endurspeglast ekki fyrr en með fjárframlögum. Það er auðvelt að setja fram metnaðarfulla og sterka og skýra stefnu ef eftir á að útvega fjármagnið.

Ég vil því líka biðja hæstv. ráðherra að bregðast við því og spyrja hvaða vilja eða hvaða afl hæstv. ráðherra ætlar að setja í það að veita framlög í fjárlögum til þess að þær pólitísku áherslur sem fram koma í frumvarpi hæstv. ráðherra megi sín einhvers frammi fyrir öðrum þeim verkefnum sem brýn eru á vegum ríkisins. Það tel ég vera mjög mikilvægan punkt.

Mig langar að lokum í minni stuttu ræðu að biðja ráðherrann að skerpa á því sem ég spurði um hér áðan sem eru samningar við landeigendur.

Í 8. gr. segir, með leyfi forseta:

„Ferðamannaleiðir, ferðamannastaðir og ferðamannasvæði sem njóta greiðsluþátttöku úr ríkissjóði af því að þau eru í landsáætlun skulu vera opin gjaldfrjálsri umferð almennings eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum og reglugerðum. Landeiganda er þó heimilt að taka gjald fyrir veitta þjónustu.“

Ég vil spyrja hæstv. ráðherra um það, ef hún gæti komið að því í lokaræðu, hvernig þetta kemur heim og saman við frumvarp hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra um náttúrupassa. Hér er mjög skýrt kveðið á um að þessi svæði skuli vera opin gjaldfrjálsri umferð almennings eftir því sem nánar er kveðið á um í reglum og lögum — þá er væntanlega verið að vísa til stöðu almannaréttarins í náttúruverndarlögum fyrst og fremst. Ég saknaði þess og það kom raunar fram — hæstv. ráðherra var ekki hér í umræðunni um náttúrupassa þó að vel hefði farið á því að báðir ráðherrar ferða- og umhverfismála hefðu tekið þátt í þeirri umræðu — að náttúrupassinn, öll sú hugmyndafræði, hvílir á tilteknum skilningi á almannaréttinum. Almannarétturinn og sú umræða öll hefur ekki verið til lykta leidd í umhverfis- og samgöngunefnd og tillaga nefndarinnar til þingsins um það hvernig beri að skilgreina þann rétt.

Ég tek eftir því hér að í 8. gr. er kveðið á um að þau svæði sem njóta framlaga úr ríkissjóði af því þau eru í landsáætlun skuli vera opin gjaldfrjálsri umferð almennings. En það gefur þá tilefni til að spyrja jafnframt: Hvað með þau svæði sem ekki njóta fjárframlaga úr ríkissjóði í samræmi við landsáætlun eða sem byggjast á landsáætlun? Gilda þá einhver önnur sjónarmið að mati umhverfisráðherra um það? Menn kynnu að freistast til þess að gagnálykta á grundvelli orðalags 8. gr. Síðan spurði ég hér áðan um þetta orðalag þar sem kemur fram að landeiganda sé heimilt að taka gjald fyrir veitta þjónustu: Hvaða þjónusta gæti það verið? Hafa menn botnað þá umræðu?

Virðulegi forseti. Ég ætlaði mér nú ekki að halda langa ræðu undir þessari umræðu (Gripið fram í.) en það er þó þannig að hér tel ég ljóst að málið sé sett af stað af góðum vilja og þetta sé í grundvallaratriðum viðleitni til að samræma áætlanir býsna margra stofnana og aðila í þágu náttúruverndar og skynsamlegrar nýtingar opinbers fjár, sem er gott. En um leið sakna ég þess að ítarlega sé farið yfir það hvernig samspil þessarar áætlunar á að vera gagnvart gildandi lögum um Umhverfisstofnun og friðlýst svæði, um Þingvallaþjóðgarð og um Vatnajökulsþjóðgarð.

Ekki er laust við að upp komi sú hugsun, í þessari umræðu allri, hvort ekki fari að koma að því að við setjum á stofn myndarlega þjóðgarðastofnun sem vistar öll þessi svæði og þar sem öll þessi svæði lúta sameiginlegri stjórn og sameiginlegri sýn. Það er svo kúnstugt eins og málin standa í dag að þrjár stofnanir undir tveimur ráðuneytum sjá um friðlýst svæði og þjóðgarða á Íslandi. Ég held að sambærileg óreiða í stofnanauppbyggingu friðlýstra svæða sé vandfundin í öðrum þeim löndum sem byggja á náttúruvernd og ferðaþjónustu.

Einhvers staðar í umhverfisráðuneytinu eru til ágætar úttektir á því hversu hagkvæmt og skynsamlegt er að setja þjóðgarðastofnun á fót. Sumir hafa viljað ganga enn lengra og segja að slík stofnun ætti líka að hafa umsjón með þjóðlendum og öllum þeim landsvæðum sem eru í eigu og forsjá ríkisins. Vel má færa rök fyrir því að slíkt fyrirkomulag væri betra og skynsamlegra og með því yrði fjármunum betur forgangsraðað og varið. Það er önnur umræða en sú sem hér er vakin með þessu máli. En þó tel ég, vegna þess að hér er verið að freista þess að ná utan um stórt og mikilvægt mál, að menn komist tæpast hjá því að nálgast umræðu um stofnanauppbyggingu þessa geira með einhverjum hætti.