144. löggjafarþing — 62. fundur,  3. feb. 2015.

almenn hegningarlög.

470. mál
[22:35]
Horfa

Björt Ólafsdóttir (Bf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka þingmanninum kærlega fyrir þessar útskýringar, þær voru góðar og vil enn og aftur undirstrika þakklæti mitt til hans og annarra framsögumanna að leggja málið fram. Mér þykir í rauninni ótrúlegt að þetta sé ekki stjórnarfrumvarp og það hafi ekki komið fram á síðustu tíu árum. En hv. þingmaður stendur vaktina og fyrir það er ég sannarlega þakklát.