144. löggjafarþing — 63. fundur,  4. feb. 2015.

störf þingsins.

[15:06]
Horfa

Sigurður Örn Ágústsson (S):

Hæstv. forseti. Nýlegar vöktu athygli mína fréttir af bandaríska matsfyrirtækinu Standard og Poor's, m.a. í Wall Street Journal, um tæplega 185 milljarða greiðslu sáttar til að sleppa við að fara í dómsal vegna ásakana um að hafa afvegaleitt fjárfesta. Setjum það aðeins í íslenskt samhengi. Íslenskir lífeyrissjóðir töpuðu 20% eigna sinna, peningunum mínum, peningunum þínum, í hruninu. Um helmingur þess sem tapaðist, um 150 milljarðar, var hlutabréf í íslenskum bönkum sem metnir voru af þessum bandarísku matsfyrirtækjum sem sérlega góðir og traustir fjárfestingarkostir nánast fram að hruni.

Einkunnagjöf matsfyrirtækja á íslenskum bönkum rétt fyrir hrun, sem hafði áhrif á eða átti að hafa áhrif á hvort verðbréf og skuldabréf væru seld, keypt eða þeim haldið, var ævintýralega langt út úr kortinu. Matsfyrirtækin áttu að vita og máttu vita að ekki væri allt með felldu í íslenskum bönkunum, krosseignatengsl, gríðarlega há lán til stórra hluthafa og allt of lágir afskriftareikningar meðal annars. Viðvarandi of hátt verðmat matsfyrirtækjanna á bönkunum var rangt og leiddi til stórfellds tjóns fyrir íslenska lífeyrissjóðsþega. Í sumar er leið veitti ég liðsinni málafærslumanninum Tim McCarthy, meðeiganda lögmannsstofunnar Mischon de Reya í New York. Tilgangurinn var að fá lífeyrissjóði á Íslandi til að kanna grundvöll málsóknar á hendur matsfyrirtækjunum, sækja bætur.

Áður þyrfti að leggja í greiningarvinnu, kanna meðal annars samskipti matsfyrirtækjanna við lífeyrissjóðina. Rík áhersla var lögð á að tíminn væri knappur, við hefðum ráðrúm fram á haust 2014 vegna fyrningarreglu. Þá vinnu sem leggja þyrfti í til að geta tekið ákvörðun hvort lögsókn væri fýsileg voru Mischon de Reya tilbúnir að taka að sér fyrir um 20 millj. íslenskar krónur. Þegar mér heyrðist það ekki hljóta mikinn hljómgrunn hjá íslenskum lífeyrissjóðum og jafnvel að fjárhæðin, 20 millj. kr., stæði í þeim bauðst ég á endanum opinberlega til að fjármagna það gegn aðgengi að umræddum gögnum ef lífeyrissjóðirnir hefðu kjark til að hjóla í matsfyrirtækin. Kostnaður lífeyrissjóðanna yrði þá enginn, áhættan engin. Hafi einhvern tímann verið tækifæri til að sækja gull í greipar erlendra aðila þá var það þarna. Þarna voru klárlega óvandaðir menn í mikilvægum fyrirtækjum að svindla (Forseti hringir.) með gríðarlega alvarlegum afleiðingum fyrir okkur.