störf þingsins.
Virðulegi forseti. 1. umr. um frumvarp iðnaðar- og viðskiptaráðherra um náttúrupassa lauk hér í gærkvöldi með nokkuð sérkennilegum hætti þegar hæstv. ráðherra fór að velta vöngum yfir því til hvaða nefndar málið ætti að fara eins og hefur verið reifað undir liðnum um störf þingsins. Það má segja að þau endalok umræðunnar hafi verið dálítið lýsandi fyrir allan aðdraganda málsins. Það virðist vera vanreifað að mjög mörgu leyti. Það sem mér finnst standa upp úr eftir þessa 1. umr. er að hér hafa komið fram margar hugmyndir. Margir hv. þingmenn hafa tekið þátt og velt upp leiðum um hvað þeir telji vænlegra en náttúrupassann til að ná þeim árangri að við fáum inn fjármagn til að geta staðið að nauðsynlegri vernd og uppbyggingu friðlýstra svæða og ferðamannastaða.
Þar ber auðvitað fyrst að nefna að náttúruvernd er lögbundið hlutverk ríkisins og til þess á það auðvitað að nota að hluta til skattfé. Þó hafa verið nefndar leiðir til að bæta fjármunum inn í þetta verkefni eins og að útfæra gistináttagjaldið þannig að það sé þrepaskipt og skili meiru í kassann, eins og til að mynda að rukka fyrir veitta þjónustu á borð við bílastæði. Það var nefnt í umræðunni og hér voru nefnd líka komugjöld á farseðla yfir háannatímann í ferðaþjónustu.
Mér finnst borðleggjandi núna þegar 1. umr. er lokið og málið fer til einhverrar nefndar hér á eftir að hæstv. ráðherra stigi fram og kalli þingmenn úr öllum flokkum til samráðs um að setja þetta mál til hliðar, og ekki bara til hliðar heldur ofan í skúffu og læsa þeirri skúffu og setjast að því borði að finna blandaða leið til að tryggja fjármagn til uppbyggingar ferðamannastaða og tryggja vernd friðlýstra svæða. Ég las það út úr umræðunni að hér er fólk reiðubúið að leita lausna saman, en til þess þarf (Forseti hringir.) að kalla alla að borðinu og setja þetta mál (Forseti hringir.) sem ekki nokkur maður virðist styðja, a.m.k. mjög fáir, (Forseti hringir.) ofan í skúffu (Forseti hringir.) og læsa þeirri skúffu.