144. löggjafarþing — 63. fundur,  4. feb. 2015.

náttúrupassi.

455. mál
[15:38]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Sú uppákoma sem varð hér í gærkvöldi er mikið undrunarefni. Ég styð það að fallið verði frá tillögunni um að málinu verði vísað til umhverfisnefndar, ég tel að það sé ágætt að atvinnuveganefnd hafi um það forustu, en vek athygli á því að málið er svo vanreifað og svo illa úr garði gert að í því felst frumvarp um nýjan skatt samkvæmt orðanna hljóðan. Því hefði líka verið full ástæða til að vísa því til efnahags- og viðskiptanefndar. Það er því algjörlega ljóst í mínum huga að atvinnuveganefndar bíður það verkefni að senda frumvarpið til umsagnar jafnt umhverfis- og samgöngunefndar og efnahags- og viðskiptanefndar því að þetta er ekkert náttúruverndargjald af neinum toga. Þetta er ekki tengt hættu á raski á viðkvæmum stöðum af neinum toga, þetta er almennur skattur sem á að renna í ríkissjóð með almennum hætti. Það er óhugsandi að slíkt frumvarp sé afgreitt á Alþingi öðruvísi en að því sé vísað til efnahags- og viðskiptanefndar.