144. löggjafarþing — 63. fundur,  4. feb. 2015.

félagsþjónusta sveitarfélaga.

416. mál
[18:19]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Það er svo mikilvægt í þessari umræðu að hafa í huga að ef við lítum til höfuðborgarsvæðisins og hlutfalls íbúa þar á fjárhagsaðstoð í kjölfar efnahagslægða þá voru 4% á fjárhagsaðstoð árið 1997, svo lækkaði hlutfallið, árið 2002/2003 var það 4% og núna er það 4,2%. Þetta er því algjörlega í samræmi við stöðu efnahagsmála og áhrifin inn á fjárhagsaðstoðina. Að jafnaði er fólk skamman tíma á fjárhagsaðstoð. Það er þakkarvert að margir koma einungis inn tímabundið, vegna tímabundinna vandræða. En í eðlilegra árferði eru þeir sem ílengjast einstaklingarnir sem eru í hvað mestri þörf fyrir aðstoð. Það sem ég óttast mest af öllu er að það verði fólk sem verður enn jaðarsettara en það er nú þegar í íslensku samfélagi, að hótunin um að svipta það lífsviðurværi dugi ekki, því að það þarf að mæta fólki og hvetja það og styðja til þess að komast út úr aðstæðum sínum. Þegar það fer að líta á félagsþjónustuna sem óvin sinn og að kerfið ætli einhvern veginn að reyna að klekkja á því ýtist það lengra út á jaðarinn. Við vitum öll að það eru bæði drengir og stúlkur sem fara út í sölu á eiturlyfjum, fara út í að selja sig. Ég held að við séum að búa til samfélagsvandamál í stað þess að horfast í augu við að við þurfum að leggja örlítið meiri fjármuni núna í fjárhagsaðstoðina (Forseti hringir.) á meðan við erum að ná okkur upp úr efnahagslægð.