144. löggjafarþing — 64. fundur,  5. feb. 2015.

tollamál á sviði landbúnaðar.

[10:51]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Ég er búin að vera að lesa skýrslu starfshóps um tollamál á sviði landbúnaðar og langar að spyrja hæstv. ráðherra aðeins út í hana.

Niðurstaðan eins og ég les hana er sú að tollvernd hér er mjög mikil. Mér finnst skýrslan að miklu leyti ganga út á hvaða tækifæri séu fyrir útflytjendur. Mér finnst vanta neytendavinkilinn en skipunarbréfið var kannski þannig að ekki var gert ráð fyrir því.

Ég tók eftir því að á bls. 17 er talað um tvíhliða samning við Noreg. Við megum flytja út 200 hross, höfum tollkvóta fyrir 200 hross, en á móti getum við flutt 13 tonn af smurosti og 15 tonn af kartöfluflögum inn frá Noregi. Maður veltir fyrir sér: Hver semur um þetta? Eru það hagsmunir neytenda að fá kartöfluflögurnar og smurostana? Ég hjó líka eftir því sem stendur á bls. 39, en þar er ítrekað talað um að bæta þurfi markaðsaðganginn. Þar segir að stjórnvöld hafi leitast við að fá bættan markaðsaðgang við önnur ríki en ljóst sé að gera megi enn betur meðal annars gagnvart Evrópusambandinu. Þá hugsar maður með sér: Ja, frábær leið að slíta aðildarviðræðunum á sama tíma og við ætlum að reyna að fá betri samninga við Evrópusambandið þegar kemur að tollkvótum.

Hér segir einnig að bæta þurfi markaðsaðgang fyrir mjólkurafurðir, einkum skyr, eftirspurn eftir skyri er vaxandi og í Bandaríkjunum eru mikil tækifæri fyrir íslenskar landbúnaðarvörur og einkum á grundvelli sérstöðu. Hvar eru tækifæri fyrir neytendur? spyr ég. Þarf að gera aðra skýrslu um tækifæri neytenda og seljenda á markaði hér? Hvað mundi það þýða ef tollvernd væri afnumin eða minnkuð verulega? Mig langar að spyrja ráðherra hvort hann telji kannski þörf á annarri skýrslu.