lífeyrismál.
Hæstv. forseti. Nýlega kom út rannsókn með heitinu Nægjanleiki lífeyrissparnaðar sem unnin er á vegum Landssambands lífeyrissjóða og Fjármálaeftirlitsins.
Hér er mikið alvörumál á ferð enda er um að ræða lögbundinn sparnað launafólks og í rannsókninni kemur fram að um þriðjungur af launafólki nær ekki markmiði um 56% lífeyrishlutfall af meðalævitekjum. Rúmur fjórðungur fólks á aldrinum 35–39 ára nær því ekki. Meira en helmingur fólks í sjóðum á almenna markaðinum nær ekki þessu viðmiði og karlar fá 24% hærri lífeyri en konur.
Launafólk greiðir 12–15,5% af tekjum sínum í lífeyrissjóði alla starfsævina og það getur ekki gengið að kerfið uppfylli ekki skilyrði laganna. Þar að auki mun kostnaðurinn af þessum „ónægjanleika“ valda auknum útgjöldum fyrir Tryggingastofnun vegna almannatrygginga í framtíðinni, ólíkt því sem lagt var upp með.
Ég vil því spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra þriggja spurninga. Ég vil spyrja hann hvað líði endurskoðun á lífeyriskerfinu sem hefur staðið yfir innan fjármálaráðuneytisins nokkur síðastliðin ár. Ég vil spyrja hann hvort yfirstandandi aðgerðir er ógna séreignarsparnaðarkerfinu, sem einmitt er tekið fram í skýrslunni að skipti máli upp á að auka lífeyri fólks, verði ekki að endurskoða í ljósi þessarar skýrslu. Ég vil spyrja hvort hann telji ásættanlegt að kynbundinn launamunur aukist á lífeyrisaldri.