144. löggjafarþing — 64. fundur,  5. feb. 2015.

félagsþjónusta sveitarfélaga.

416. mál
[11:43]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Já, við erum nefnilega sammála um að það að leita til sveitarfélagsins til að fá fjárhagsaðstoð til að eiga fyrir nauðþurftum er aðstaða sem engan langar að vera í. Í þessari skilyrðingaorðræðu er einhvers konar móralskt yfirlæti, að það fólk standi sig einhvern ekki og það þurfi að hjálpa því til að standa sig og líklegasta leiðin sé að niðurlægja það enn frekar. Svona á meðan þeir ríku er að verða ríkari, er það þá skoðun þingmannsins að þeir sem minnst eiga og hafa séu að verða latari, óábyrgari og hysknari og því sé nauðsynlegt að breyta lögum á þennan hátt?