félagsþjónusta sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég held að það sé einmitt alveg rétt að það er mjög mikilvægt að horfa heildstætt á málin, horfa á það sem ríkið er að gera og síðan það sem tekur við þegar sveitarfélögin koma til. Það sem virðist skorta er samráð á milli ríkisins og sveitarfélaganna. Við sáum það vel hér, þegar við vorum að ræða fjárlagafrumvarpið, að stytting bótatímabilsins virtist koma sveitarfélögunum á óvart. Þau mótmæltu og sögðu: Þetta mun lenda á okkur og ríkið á ekki að vera að spara hjá sér og svo kemur sparnaðurinn bara niður á öðru stjórnsýslustigi. Ég held því að það sé mjög mikilvægt að samræma þarna aðgerðir.
Um leið verðum við að hafa í huga að atvinnuleysistryggingar eru allt annars eðlis en félagsþjónusta sveitarfélaga. Þess vegna eigum við að horfa á það með öðrum augum. Annars vegar eru réttindi sem menn hafa áunnið sér, en þegar þannig er komið að leita þarf á náðir sveitarfélaganna er annað upp á teningnum og það þarf að horfa öðruvísi á það.
Það sem virðist vera að gerast með þessu frumvarpi er einhvern veginn að fella þetta saman, að það séu atvinnuleysisbæturnar og svo taki félagsaðstoð við sem er miklu verri og þyngri en samt einhvern veginn með sömu skilyrðum. Þannig að: Jú, við skulum endilega horfa á þetta í samhengi en muna eftir (Forseti hringir.) muninum á þessum tveimur kerfum.