144. löggjafarþing — 64. fundur,  5. feb. 2015.

félagsþjónusta sveitarfélaga.

416. mál
[12:40]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna og deili með henni mörgum þeim vangaveltum og að mörgu leyti þeirri sýn sem hún hefur á þetta mál.

Mig langar kannski fyrst og fremst til þess að spyrja þingmanninn um pólitíkina hér að baki. Ég er sammála því að þetta er dæmi um þingmál sem er flaggmál vegna þess hversu skýr pólitík liggur þar að baki. Þetta er ekki ægilega stórt mál en felur í sér mjög mikið pólitískt innihald, sem fellur algjörlega saman við svo marga aðra þætti sem ríkisstjórnin stendur fyrir. Ég held raunar að þessi skýra pólitík sé ástæðan fyrir því að krafan úti í samfélaginu um breytingar er að verða sífellt sterkari og stuðningurinn við ríkisstjórnarflokkana er á undanhaldi. Stuðningurinn við ríkisstjórnina er á undanhaldi.

Vegna hvers er það? Jú, það er vegna þess að þau hafa ekki umboð til að gera þetta. Þau voru ekki kosin til að gera þetta. Þau voru kosin út af tilteknum „loforðum“ í tilteknum málum, sem við getum haft og höfum allar mögulegar skoðanir á, en svo er búið að uppfylla, sem ég kýs að hafa innan gæsalappa þessi „loforð“, en þá er tekið til við svona aðgerðir sem voru aldrei nefndar í kosningabaráttunni. Þetta var aldrei nefnt. Einkavæðing heilbrigðiskerfisins var aldrei nefnd og fleiri atriði sem eru skýr hægri pólitík og mjög róttæk hægri pólitík í raun og veru, miklu róttækari en maður hefði trúað. Framsókn hefur stundum veitt viðnám í gegnum söguna en sannarlega ekki núna og að sumu leyti er Framsókn öflugri í sinni hægri pólitík en Sjálfstæðisflokkurinn. (Forseti hringir.)

Ég spyr: Hvaða verkefni eru mikilvægust? Og ég held að við þurfum að fara að búa okkur undir það. Hvaða verkefni eru mikilvægust í íslensku samfélagi til þess að auka jöfnuð?