félagsþjónusta sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Í ræðu minni fór ég yfir það að enn tel ég að eftir séu framsóknarmenn sem aðhyllast samvinnuhugsjónina og vilja auka velferð. En því miður þegar núna koma saman framsóknarmenn og sjálfstæðismenn í þessari ríkisstjórn virðast hægri elementin í báðum flokkum bólgna mikið út og verða ofan á í stefnunni, og það er mjög skýrt, alveg eins og hv. þingmaður dró fram. Hægri stefnan er mjög skýr og hún nær alla leið.
Síðan spyr hv. þingmaður hvaða verkefni það séu sem við þurfum að fara í til þess að auka jöfnuð í samfélaginu. Þá þurfum við í fyrsta lagi að leggja til hliðar það frumvarp sem við ræðum hér og halda okkur við anda laganna frá árinu 1991. Við þurfum að fara til baka með ýmsar ákvarðanir sem hægri stjórnin hefur tekið og við þurfum að opna opinbera skólakerfið t.d. aftur fyrir 25 ára og eldri nemendum sem vilja stunda bóknám, það er eitt af því. Menntun skiptir mjög miklu máli fyrir þróun samfélagsins og fyrir hagvöxt í samfélaginu, og það var undarleg ákvörðun sem tekin var hér í sparnaðarskyni að setja fjöldatakmarkanir í framhaldsskólum. Síðan þurfum við að horfa til launastefnu í framhaldinu til þess að auka jöfnuð í samfélaginu.