félagsþjónusta sveitarfélaga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svörin. Það er eitt sem hefur kannski lítið verið rætt í þessari umræðu og við höfum heldur ekki rætt mikið þegar við tölum almennt um atvinnuleysisbótakerfi, félagslega aðstoð, elli- og örorkulífeyri o.s.frv., það er hugmyndafræðin sem gegnsýrir stöðu einstaklinganna sem þurfa að reiða sig á einhvers konar framlög frá samfélaginu til þess að draga fram lífið.
Í þessari umræðu hafa menn svolítið verið að tala um þung skref, að það séu þung skref að stíga að þurfa að þiggja bætur. Ég held að það sé eitt af verkefnum okkar að snúa þeirri orðræðu við. Ég held að það sé mikilvægt að við sem erum svona samfélagsmegin í umræðunni höldum því til haga að það er samfélagslegur réttur hvers manns að geta lifað, og samfélagið í heild ber ábyrgð á því. Það snýst ekki um að þiggja bætur heldur að sækja sinn rétt. Stundum hefur verið talað um að við ættum frekar að tala um samfélagslaun en önnur þau hugtök sem notuð eru þegar við ræðum almennt um bótakerfið. Ég held að það sé mikilvægt út frá þeirri hugsun að það að þurfa að byggja framfærslu sína á slíkum framlögum tímabundið eða til lengri tíma geti maður gert án þess að samfélaginu eða manni sjálfum finnist það vera lítillækkandi á nokkurn hátt.