144. löggjafarþing — 64. fundur,  5. feb. 2015.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks.

454. mál
[14:37]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Já, þetta er svo sannarlega alltumlykjandi málaflokkur, málefni fatlaðs fólks, því að fatlað fólk er fyrst og fremst fólk sem tekur þátt í samfélaginu eins og allir aðrir og það ætti að vera hlutverk okkar að greiða götu þess til samfélagsþátttöku. Það er alveg rétt að það er ýmislegt sem telur þegar kemur að kostnaði. Þess vegna finnst mér það alveg skoðunarinnar virði hvort við ættum að breyta því hvernig kostnaðurinn dreifist milli ríkis og sveitarfélaga með það fyrir augum að jafna aðstöðumun fólks eftir því hvar það býr þannig að allir sitji við sama borð hvar á landinu sem þeir búa og hafi jöfn tækifæri.