144. löggjafarþing — 64. fundur,  5. feb. 2015.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks.

454. mál
[14:59]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. félagsmálaráðherra, Eygló Harðardóttur, fyrir frumvarpið. Þetta eru orð í tíma töluð og það að framlengja þetta verkefni núna til ársins 2016 er afar mikilvægt. Við sem höfum þekkt þetta verkefni frá því að það hófst árið 2011, ef ég man rétt, gerum okkur grein fyrir því hvers konar framfaraspor það var fyrir þá einstaklinga sem þurfa að nota þessa þjónustu. Það er í rauninni að tryggja sjálfstætt líf þeirra sem þurfa að njóta aðstoðar sveitarfélaganna með NPA-þjónustu, sem er góð og hefur komið mörgum svo vel. Maður hefur jafnvel ekki getað ímyndað sér líf þessa fólks án þeirrar aðstoðar og það sjálfræði sem það fær og í rauninni þau lífsgæði sem því eru tryggð með þessu verkefni. Þess vegna er það afar mikilvægt og þakkarvert að málið skuli vera komið til þingsins og við sem sitjum í velferðarnefnd munum auðvitað taka á málinu á næstu dögum og vikum.

Það er vissulega þannig að töluverð umsýsla er fyrir viðkomandi að vera í þessu verkefni. Það þarf rekstrarkunnáttu, hafa mannaforráð og þess háttar. Þetta er því í rauninni kannski ekki alveg fyrir alla, jafnvel ekki fyrir alla ófatlaða að standa í því en það er hægt að leita sér aðstoðar með það. En mjög mikilvægt er að tryggja að fatlaðir njóti þessarar þjónustu út í ystu æsar.

Ég tek reyndar undir flest það sem hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir sagði áðan hvað varðar starfsmennina. Það er gríðarlega mikilvægt að hæft starfsfólk fáist til að sinna viðkomandi einstaklingum. Þetta eru viðkvæm störf og það þarf jafnvel að skoða hvernig við getum menntað fólk til að takast á við þau verkefni sem það þarf að sinna. Þetta er líka stórt verkefni fyrir sveitarfélögin. Þegar málefni fatlaðra var sent yfir til sveitarfélaganna varð minnsta sveitarfélagið sem tók yfir þau málefni að vera um það bil 8 þús. íbúar og í ljós hefur komið að minnstu sveitarfélögin geta átt í erfiðleikum ef samningarnir eru margir. Við þurfum að gæta að því að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga komi þá að því verkefni og tryggi framgang samninganna, en þeim er að fjölga. Það er kannski öfugsnúið að segja að það sé gott, en það er auðvitað mikilvægt að allir þeir sem þurfa á því að halda fái slíka samninga en vissulega vonum við alltaf að þeir verði jafnan sem fæstir.

Mig langar aðeins í lok þessarar stuttu ræðu minnar um þessi mál, um leið og ég lýsi ánægju minni með að þetta verkefni er komið til þingsins, að minnast á nokkur atriði sem Guðjón Sigurðsson, formaður MND-samtakanna, skrifaði um. Hann nefndi nokkra punkta, með leyfi forseta, sem hann taldi að við þyrftum að hafa í huga þegar við hugum að þessu verkefni, þ.e. að: „Lögfesta/innleiða samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ráða inn fólk sem gerir flest eða allt sem þarf til að aðstoða einn einstakling. Gera kjarasamning sem nær utan um þetta starf, t.d. sofandi næturvaktir.“ — Sem er líka fylgihlutur þeirra fylgdar- og aðstoðarmanna sem sinna fötluðu fólki. — „Breyta þeim lögum og reglugerðum sem þvinga sveitarfélögin til að skipta upp aðstoðinni eins og gert er í dag. Gera sveitarfélögum mögulegt að sjá um utanumhald vegna starfa aðstoðarfólks.“ — Það er eitthvað sem við þurfum að skoða líka og í góðri samvinnu við sveitarfélögin. Þetta eru góðar hugmyndir sem Guðjón Sigurðsson setur fram og mjög mikilvægir punktar sem við þurfum að hafa í huga í þessari vinnu okkar.

Hann kemur líka að þeim punkti sem hv. þingmaður talaði um áðan, að „fólk færi í grunnnám sem aðstoðarfólk og það verður að vera sía á sem flesta sem eru óhæfir til að sinna svona viðkvæmum störfum“. Þarna kemur hann inn á það sem hér var talað um fyrr, að við þurfum að velja hæft og gott fólk til að sinna þessum störfum. Í lok dagsins er verkefnið að tryggja fötluðum gott, sjálfstætt líf.