144. löggjafarþing — 64. fundur,  5. feb. 2015.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks.

454. mál
[15:18]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er mikilvægt að ræða þetta, þetta er einn af þeim þáttum sem hefðu átt að koma sem niðurstaða út úr þróunarverkefninu eða tilrauninni — hvernig er þessi kostnaðarskipting, hvernig er hún réttlætanleg, hver á að bera ábyrgð á hverju? Þarna er jöfnunarsjóði blandað inn í, ég held að það sé mikilvægt, en markmiðið er að þetta sé fjármagnað af sveitarfélögunum.

Það var líka sett sú umgjörð að þetta er ekki til einstakra sveitarfélaga heldur til byggðasamlaga eða svæða þar sem gerð er lágmarkskrafa, ef ég man rétt voru það 8 þúsund íbúar sem urðu að vera á bak við hvert svæði, þannig að í raun eiga svæðin að ráða ágætlega við verkefnið. Engu að síður taka menn á þessu á mismunandi vegu og við verðum að viðurkenna að sveitarfélögin eru sjálfstætt stjórnsýslustig og hafa frelsi að ákveðnu marki. Við þurfum þá að setja löggjöf sem gerir kröfur um ákveðna grunnþjónustu.

Ég kann ekki að meta hvort hlutfallið 80/20 á að halda áfram um einhvern tíma, hvort það er endanleg tala eða ekki, það er nákvæmlega það sem við hefðum átt að vera að skoða að fenginni reynslu og leggja mat á. Ég held að þetta sé hluti af því sem sveitarfélögin hafa áhyggjur af, að þau ráði ekki almennilega við þetta, þetta sé of dýrt. Þar kann að vera að ríkissjóður þurfi að grípa inn í.

Oft þegar menn eru að tala um tölur í þessu samhengi og eru að reyna að verðleggja einstaklinga og þjónustuna sem þeir fá, finnst mér sú umræða ótrúlega ósanngjörn. Þegar við förum að kostnaðarmeta hvað við kostum öll sem einstaklingar, hvað við höfum fengið út úr ríkiskerfinu og hver hefur borgað hvað, þá er ég hræddur um að við sjáum býsna háar tölur. Það hefur líka verið vakin athygli á þessu í heilbrigðiskerfinu, fjöldi sjúklinga er með lyf sem kosta milljónir á ári hverju. Sem betur fer gerir enginn athugasemd við það. Það er bara sjálfsagður hluti af því að reyna að tryggja viðkomandi fólki bærilegt líf.