144. löggjafarþing — 64. fundur,  5. feb. 2015.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks.

454. mál
[15:34]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Eygló Harðardóttir) (F) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir andsvarið. Það sem ég sagði um gæðaviðmið með ákveðnum stöðlum grundvallast á þeirri hugsun að ég vil tryggja að fólk viti að það geti gert ákveðnar lágmarkskröfur, óháð búsetu, um félagsþjónustu, barnavernd, málefni fatlaðs fólks, málefni aldraðra, í þessum viðkvæmu og stóru málaflokkum sem sveitarfélögin sinna m.a. með okkur. Þá er ég ekki að segja að sum sveitarfélög muni ekki gera betur, þau munu hafa sjálfræði til að gera betur, en að fólk geti að lágmarki gengið að þessu þjónustustigi sem vísu, óháð því hvar það ákveður að búa.