aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður nefndi í ræðu sinni hér áðan að þjónusta væri mismunandi milli sveitarfélaga, ekki væru öll sveitarfélög með sömu þjónustu og þess vegna gæti verið erfitt fyrir einstakling sem nýtur NPA-þjónustunnar að flytja. Hún lét í það skína að þarna væru hálfpartinn átthagafjötrar á ferðinni.
Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hún muni ekki taka þetta upp í nefndinni. Ég geri ráð fyrir að fyrir nefnd komi fulltrúar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og þá væri hugsanlega hægt að bæta þessa hluti með samráði og einhverjum fyrir fram ákveðnum ferlum hvað þetta varðar. Ég spyr hv. þingmann hvort hún muni ekki beita sér fyrir því.
Kostnaðurinn fellur á sveitarfélögin en vonandi mun jöfnunarsjóður jafna hann á milli sveitarfélaga sem geta átt í erfiðleikum með að uppfylla þetta allt saman.
Spurningin er hvort hv. þingmaður muni ekki beita sér fyrir því að fara í gegnum þessa ferla og hvetja til þeirrar vinnu að auðvelda fólki að flytja svo að þjónustan detti ekki niður við það eitt að flytjast á milli sveitarfélaga.