aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langar að halda áfram þar sem frá var horfið varðandi þann hnökra sem er hvað alvarlegastur og lýtur að því að geta ekki fengið að ráða betur hver það er sem er svona mikið með manni. Þetta er náttúrlega mjög persónuleg vinna og því gríðarlega mikilvægt að rétt sé að henni staðið.
Mig langar að spyrja þingmanninn hvernig hann telur best að lagfæra þann hnökra og hvort hann sé ekki sammála mér að margt í þessu sé jákvætt. Það er ósk mín að allir þeir ólíku áfangar sem þarf að gera að lögum til að hér sé alvörunotendaþjónusta verði að veruleika. Það sem ég óttast pínulítið þegar verið er að taka þætti í heildrænni stefnu og ólíkum verkþáttum breytt í ólíkum lögum er að á endanum verði mikið af götum í þjónustunni. Mig langar að spyrja hvort þingmaðurinn sé sammála mér um að slíkt beri að varast.
Mig langar að heyra hvort þingmaðurinn hafi einhverjar tillögur að úrbótum og hvað það er sem velferðarnefnd þarf sérstaklega að huga að.