144. löggjafarþing — 64. fundur,  5. feb. 2015.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks.

454. mál
[16:33]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er hárrétt sem þingmaðurinn nefnir að nándin er mikil. Maður áttar sig kannski ekki á því til fulls fyrr en maður er búinn að tala við einstaklinga þar sem maður sér að samskiptin við aðstoðarmanninn eru orðin svo náin að það eiga sér stað samskipti án þess að nokkur orð fari á milli, lítil sem engin. Þá sér maður hversu miklum árangri er hægt að ná, hversu mikið tæki til valdeflingar notendastýrð persónuleg aðstoð getur verið fyrir fólk með mikla fötlun sem þyrfti kannski á stofnun að búa við að hitta ólíkt fólk á ólíkum vöktum allan sólarhringinn. Þess vegna skiptir mjög miklu máli að umgjörðin sé þannig að fólk geti nýtt sér þetta og ráðið til starfa einhverja sem fólk treystir til verkefnisins og það er ekki bundið við fólk með sumar gerðir fötlunar. Fólk með þroskahömlun á líka að hafa þetta val. Því getur einnig mislíkað við fólk og átt erfitt með að tengjast fólki, en við þær aðstæður getur oft verið erfiðara fyrir einstaklinginn að sinna atvinnurekendahlutverkinu. Það er þá sem kemur að þeirri „hybrid“-lausn sem ég er svolítið veikur fyrir að verði hugsuð, líka af því að hún gæti verið hagkvæmari peningalega. Það væri þá einhvers konar samlag sem fólk gæti keypt sig inn í, og ekki aðeins fólk með þroskahömlun því að sumir hafa ekki unun af því að vera atvinnurekendur. Ég hef rekið lítið fyrirtæki og þekki marga sem hafa rekið lítið fyrirtæki og hafa sumir skaðlega lítinn áhuga á t.d. bókhaldi eða starfsmannamálum ýmiss konar. Það getur verið þannig að fólk hafi ekki áhuga á því og þá getur það keypt sig inn í einhvers konar samlag sem sinnir starfsmannahaldi en sá sem þarf á þjónustunni að halda ræður samt sem áður starfsmanninn og getur sagt nei við starfsmanninn eða já.