aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks.
Forseti. Mér finnst þetta prýðileg lausn. Ef ég má spyrja, til að fá skýringu: Er samlag eins og samvinnufélag eða eitthvað slíkt? Þetta er danskt orð. Ég er alveg sammála. Það er í raun og veru ekki allra að hafa áhuga bæði á excel og blæbrigðum manneskju, það er eiginlega alveg gerólíkt fólk sem er gott í hvoru tveggja. Það er sjaldgæft að finna það í einni manneskju. Mér finnst þetta prýðileg hugmynd. Ég verð að segja að ég fagna því að við erum samt að fara að ná þessum áfanga. Það er gleðilegt ef hnökrarnir eru ekki margir því að þá er auðveldara að laga þá.