144. löggjafarþing — 64. fundur,  5. feb. 2015.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks.

454. mál
[16:40]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér finnst þetta góð spurning og svar mitt við henni er eiginlega það að ef notendastýrð persónuleg aðstoð á að virka finnst mér ríkið ekki eiga að setja mikið af skilyrðum um það hvernig sá sem þarf á þjónustunni að halda velur rekstrarformið. Það eru dæmi um ákaflega vel heppnaðan einstaklingsfyrirtækjarekstur að þessu leyti þar sem einkaaðilar eru ekkert að taka hagnað að öðru leyti en því að alveg eins og menn ráða fólk í vinnu til að sinna þjónustunni við einstaklinginn er aðkeypt þjónusta við bókhald og möguleg skattskil eða eitthvað annað slíkt, sem er ekki mjög dýrt og fullt af þjónustuaðilum veita slíka þjónustu og er í sjálfu sér ekkert öðruvísi en að kaupa tryggingar fyrir starfsfólk eða annað því um líkt.

NPA-miðstöðin er einmitt gott dæmi um samlagsrekstur og það skiptir auðvitað máli að þessi regnhlífarhugmynd sé möguleg. Ef hún er vel útfærð ætti hún að skapa þeim forskot sem þar njóta þjónustunnar vegna þess að yfirbyggingarkostnaðurinn ætti að verða minni að öðru jöfnu, ef honum er deilt á nokkra. Ef rekstur þjónustu við nokkra einstaklinga er saman undir einu þaki má búast við að kostnaðurinn af launabókhaldi, kostnaðurinn af skattskilum og öllum þeim þáttum dreifist betur og þar af leiðandi sé það almennt séð hagkvæmari lausn.