aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og gott innlegg í almennt mjög góða umræðu um mikilvægt mál.
Tvennt kemur upp í huga minn eftir ræðu hv. þingmanns sem mig langar að spyrja hana aðeins betur út í. Annars vegar finnst mér það mjög ágætur punktur hjá hv. þingmanni þegar hún talar um orðalagið í 1. gr., að ráðherra sé heimilt að setja reglugerð. Ég tek undir það með hv. þingmanni að það kynni að fara betur á því að það væri skýrt að ráðherra skuli setja reglugerð, þó svo að það sé eflaust andinn á bak við greinina að það sé skýrt, og vil ég taka undir það með hv. þingmanni. Ég velti líka fyrir mér þegar verið er að setja þá reglugerð hvort hv. þingmaður geti ekki tekið undir það að mikilvægt sé að haft sé samráð, ekki bara við Vinnumálastofnun heldur að líka við notendur, sérstaklega í undirbúningi þeirrar reglugerðar.
Hitt atriðið sem mig langar til að spyrja hv. þingmann út í og ég kem kannski betur að í seinna andsvari mínu, varðar fjármögnunina. Ég fagna því eins og hv. þingmaður að hér sé gert ráð fyrir 85 millj. kr. í verkefnið, en eins og komið hefur í ljós í tilraunaverkefninu hingað til er þörfin miklu meiri en verkefnið. Þörfin á samningum er miklu meiri en hægt hefur verið að uppfylla. Mig langar því aðeins að heyra hvað hv. þingmanni finnst um það. Við komum kannski betur að því á eftir.