144. löggjafarþing — 64. fundur,  5. feb. 2015.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks.

454. mál
[18:18]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ef ég byrja á því sem hv. þingmaður endaði á þá tel ég mjög mikilvægt að notandi þjónustunnar geti með sem einföldustum hætti komið á samningi milli sín og sveitarfélagsins. Ég tel að þá þurfi að koma til trygg réttindagæsla og að viðkomandi þurfi ekki, eins og hv. þingmaður bendir á, að hafa heila skrifstofu til að útfæra slíkan samning. Einstaklingar eru auðvitað mishæfir í því, hvort sem þeir eru fatlaðir eða ekki fatlaðir, að fara í gegnum einhverja skriffinnsku og allt sem því fylgir. Þetta er bara eitt af því sem þarf að tryggja að standi viðkomandi einstaklingi til boða og sé sem einfaldast og að viðkomandi fái engu að síður að fylgjast með hverju skrefi, hvað sé á ferðinni og hvað samningurinn feli í sér og þýði fyrir hann svo að hann geti nýtt sér þjónustuna sem best.

Hv. þingmaður kom líka inn á hvort það gæti verið að sveitarfélög væru misvel í stakk búin til að bjóða upp á þessa þjónustu. Því miður hef ég áhyggjur af því að þau séu ekki í sömu stöðu að bjóða upp á þessa þjónustu. Þess vegna tel ég að núna verði að skoða vel hvernig framkvæmd þessara samninga verður og skoða muninn á milli landsvæða og sveitarfélaga, hvort menn sitji þar við sama borð, bæði notendur og sveitarfélög, svo að það verði ekki ójafnræði þar á milli. Ég ætla ekki að nefna nein nöfn í því sambandi en ég hef áhyggjur af því (Forseti hringir.) að ójafnræði sé þar á milli.