aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks.
Hæstv. forseti. Nú erum við í þeirri undarlegu stöðu að þessi málaflokkur var færður yfir til sveitarfélaganna. Við viljum öll viðurkenna sjálfstæði eða jafngildi stjórnsýslustigsins, þ.e. sveitarfélög og ríki eru sjálfstæðir aðilar. Í tengslum við ýmsa málaflokka og meðal annars þennan er rétt að spyrja sig hversu mikið er eðlilegt að ríkið stýri málaflokknum. Hversu miklar kröfur á að gera o.s.frv.?
Það kom fram fyrr í umræðunni að það væri ekkert óeðlilegt, svipað og við setjum heilu lagabálkana um grunnskóla og tilgreinum hvaða kröfur eigi að uppfylla, að það yrði með einhverjum hætti gert í tengslum við þennan málaflokk líka. Það má hugsanlega sjá fyrir sér að sveitarfélögin geri það sjálf, þ.e. þau setji leiðbeinandi reglur eða jafnvel samþykktir sem nái til sveitarfélaganna með sameiginlegri afstöðu sem þau skrifi upp á. Mig langar aðeins að heyra afstöðu hv. þingmanns til þess hvernig við getum í raunveruleikanum virt sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaganna en samtímis samræmt og tryggt jafnræði varðandi þjónustuna.
Hins vegar veit ég að hv. þingmaður hefur verið virk í kjarabaráttu. Í 3. gr. frumvarpsins er fyrst og fremst fjallað um að víkja frá reglum varðandi kjarasamninga vegna sérstöðu þess starfsfólks sem við þetta vinnur, m.a. þegar þarf að sinna sólarhringsþjónustu og fleira í þeim dúr. Ég spurði hæstv. ráðherra fyrr í umræðunni hvort þetta væri unnið með stéttarfélögunum og það ku að minnsta kosti hafa verið gagnkvæmar upplýsingar hvað það varðar, en mig langar að heyra afstöðu hv. þingmanns til þessara hugmynda. Hvernig er hægt að tryggja að þarna sé ekki verið að búa til einhverjar almennar reglur sem gangi þá út yfir önnur störf, um leið og við tryggjum bæði réttindi og skyldur þessa fólks án þess að ganga á rétt notandans til að ákveða hverjir vinni hjá viðkomandi?