aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Guðbjarti Hannessyni fyrir spurningarnar og um leið vangavelturnar. Það er hárrétt hjá hv. þingmanni að verkefnið er viðamikið og margir þurfa að spila saman. Þriðji starfshópurinn kemur til sögunnar, sem hefur með fjárhagslegt mat og faglegt mat á yfirfærslunni að gera. Sá hópur hefur verið að störfum samhliða þessu. Það er býsna mikið mál að spila öllum þessum hópum saman svo að við náum fram heildstæðri löggjöf og inn í það spila alþjóðasamningar og um leið breytingar á hugtakanotkun og mannréttindi. Það er mín upplifun að það sé gríðarlega mikil og góð vinna í gangi og mikil fagþekking. Ég hef fulla trú á að við spilum þannig saman að úr verði heildstæður lagabálkur á endanum. Ég ætla að fá að hrósa hæstv. ráðherra fyrir að tryggja það að þessir hópar nái saman til að við komum þessu í sem heildstæðastan farveg að lokum.