144. löggjafarþing — 64. fundur,  5. feb. 2015.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks.

454. mál
[19:06]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Já, það er nefnilega orðalagið í kostnaðarumsögninni sem truflar mann. Það sem maður gerir yfirleitt fyrst þegar maður fær frumvarp í hendurnar er að lesa kostnaðarumsögn fjármálaráðuneytisins því að hún segir manni oft best hver andinn er í málinu.

Í kostnaðarumsögninni segir að það vanti 85 millj. kr. til viðbótar árið 2016, ella þurfi að fækka samningunum sem því nemi. Ég er svo hissa á því. Þegar við fluttum málaflokkinn yfir til sveitarfélaganna kom frumvarpið um breytingar á lögum um málefni fatlaðs fólks seint inn í þingið og minni hlutinn gerði okkur kleift að klára málið því að þá var mikill samstarfsvilji gagnvart málinu. Það áttuðu sig allir á hversu mikið var í húfi þannig að mikil samstaða myndaðist og metnaður var fyrir því að gera þetta almennilega. Þar var kveðið á um að skila ætti framkvæmdaáætlun ráðherra síðar, það var gert og var vilji til að gera þetta vel.

Þess vegna eru það vonbrigði að núna þegar þessi sami minni hluti er kominn í ríkisstjórn skuli 85 millj. kr. vera vandamál sem veldur þeim sem eiga lífsgæði sín undir þessari þjónustu umtalsverðum áhyggjum því að það er engin smábreyting að hafa fengið notendastýrða persónulega aðstoð (Forseti hringir.) og verða síðan að hætta á slíkum samningi.