144. löggjafarþing — 64. fundur,  5. feb. 2015.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks.

454. mál
[19:19]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Mig langar aðeins að leggja orð í belg og þá um það sem nýr að NPA. Ég vil minna á að við erum með varaþingmann, Freyju Haraldsdóttur, sem getur setið á Alþingi vegna þess að hún er með notendastýrða persónulega aðstoð. Sú hin sama, sem kallar nú ekki allt ömmu sína, er núna í námi í Manchester og það getur hún af því að hún er með notendastýrða persónulega aðstoð. Mér finnst þetta svo ótrúlega gott úrræði og mikilvægt. Það er ekki endilega fyrir alla og við eigum ekki að hugsa það þannig að þetta sé lausnin, en þetta er ein þeirra og fyrir þá sem geta nýtt sér lausnina og sem hentar hún er hún tvímælalaust mjög góð.

Það hefur verið talað um kostnað. Ég hef samt ekki séð neina greiningu á því sem er, hvað eigum við að segja, hafin yfir grun um að þetta sé miklu dýrari úrræði en eitthvað annað og að menn séu þá búnir að meta allt inn í. Tökum sem dæmi foreldra, aðstandendur og aðra sem þurfa að sinna fötluðum einstaklingi. Ef viðkomandi fær NPA-þjónustu getur það þýtt — sá sem hefur þurft að sinna einstaklingnum hefur farið út af vinnumarkaði, eitthvað bendir til þess að það geti verið færri innlagnir á sjúkrahús með þessari þjónustu, jafnvel minni lyfjakostnaður. Það er svo margt svona sem þarf að taka inn í ef við horfum á kostnaðinn, því að það getur vel verið að það sparist annars staðar á móti.

Það er heldur ekkert úrræði eins og búsetuúrræði geta líka verið mjög dýr. Mér finnst þetta því eiginlega ekki eiga að snúast um það heldur hvað hentar hverjum og einum og ég sé ekki eftir því að greiða skatta í þessa þjónustu. En það væri mjög gott ef gerð væri einhver almennileg úttekt. Ég held að Svíar séu kannski komnir lengra með það þar sem er hægt að sjá hvað þetta kostar raunverulega og hvað sparast.

Það hefur verið rætt hér, og ég ætla ekki að lengja umræðuna með því en tek undir það, um óvissuna með fjármögnun inn í framtíðina. Það er ekki gott, eins og hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon kom inn á, ef þetta verður til þess að skapa enn meiri ríg milli ríkis og sveitarfélaga, nóg er nú samt, og menn fara að tala um að skila verkefnum, það þarf að passa vel.

Mér finnst líka athyglisvert að lesa í frumvarpinu þar sem verið er að fjalla um fjármögnunina. Þar segir að það mundi vanta 85 millj. kr. til viðbótar árið 2016, ella þurfi að fækka samningum sem því nemur. Ekki hefur verið gert ráð fyrir slíkum viðbótarútgjöldum í langtímaáætlun um ríkisfjármálin. Ég sit í fjárlaganefnd og ég hef aldrei orðið vör við neina langtímaáætlun um ríkisfjármál yfir höfuð. Ég held að flestir viti ekkert hvað er í gangi fyrr en þeir fá fjárlög hvers árs í hendurnar. Það er einmitt þetta sem við ætlum að breyta ef við samþykkjum ný lög um opinber fjármál. Ég geri ekki lítið úr því að einhvers staðar er eflaust til eitthvert plan um langtímaáætlun um ríkisfjármál en þar er ekki gert ráð fyrir þessum peningum. Það er finnst mér áhyggjuefni.