aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Það eru fyrst og fremst tvær spurningar sem ég hef til þingmannsins af því að ég heyri það á ræðu hennar að við deilum þeirri skoðun að hugmyndafræði NPA sé afar góð og raunar held ég að ekki nokkur maður í þessari umræðu hafi haldið öðru fram. Raunar vil ég þakka fyrir umræðuna í heild því að hún hefur verið mjög góð og mikilvæg fyrir málið. En annars vegar er spurningin að því er varðar jafnræði við framkvæmd samninganna. Það er auðvitað svo að hér erum við að tala um ákveðna og skilgreinda þjónustu við tiltekinn hóp fatlaðra sem uppfylla ákveðnar forsendur, það þurfa náttúrlega að vera ákveðnar forsendur fyrir hendi. Hver er í raun og veru staða sveitarfélaganna til að koma til móts við þær væntingar án tillits til búsetu? Það er afar mikilvægt þegar þjónusta við fatlaða er annars vegar, menn hafa aðeins hér verið að ræða yfirfærslu verkefna o.s.frv., að menn líði ekki fyrir búsetuna hvað varðar möguleika til fjölbreyttra úrræða og þetta er eitt af þeim. Mig langar því að spyrja um það, þá áskorun í raun og veru sem kannski minni og síður burðug sveitarfélög standa frammi fyrir.
Hin spurningin sem mig langar til að bera upp er hvort hætta sé á því að ákveðin gliðnun verði í hópi fatlaðra milli þeirra sem geta nýtt sér NPA og þeirra sem geta það ekki.