144. löggjafarþing — 64. fundur,  5. feb. 2015.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum og málefni fatlaðs fólks.

454. mál
[19:50]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svörin. Ég held að það sé í sjálfu sér rétt mat sem kemur fram í máli hv. þingmanns að ekki er yfir vafa hafið að jafnræði geti verið tryggt þegar um þjónustu af þessu tagi er að ræða. Og það er kannski viðfangsefni okkar, þó að það falli ekki akkúrat undir þetta mál, í svo ótal mörgum efnum, þ.e. hvort hinn mikli fjöldi sveitarfélaga á Íslandi geti talist allur burðugur til þess að sinna þjónustu við íbúa landsins svo vel sé. Við höfum einatt verið þeirrar skoðunar að rétt sé að sveitarfélög sameinist á grundvelli eigin vilja, lýðræðislegs vilja, en sumir hafa bent á að það kunni að fara betur á því að taka um það ákvarðanir að sameina sveitarfélög til að tryggja jafnræði íbúanna. En það fellur undir önnur mál en nákvæmlega það sem hér er, en þó er það auðvitað mjög miðlægt hvort það sé nægilegt í raun og veru að setja sveitarfélögunum þær skorður að þau eigi að eiga samstarf á svæðum sem rúma í minnsta lagi 8 þúsund íbúa. Og þegar við erum farin að tala um mjög dreifbýl svæði þá er það kannski orðið mjög flókið í framkvæmd, ef við nefnum til að mynda Suðausturland og Vestfirði eða önnur svæði af því tagi.

Ég vil fyrst og fremst spyrja hv. þingmann hvernig hún sér fyrir sér að komið verði til móts við gliðnunina sem ég nefndi í mínu fyrra andsvari. Hvernig á að tryggja það að (Forseti hringir.) fólk sem ekki getur nýtt sér NPA verði ekki í einhverjum skilningi skilið eftir og njóti (Forseti hringir.) jafn öruggs aðgengis að opinberu fé til að tryggja bestu mögulega þjónustu?