144. löggjafarþing — 67. fundur,  17. feb. 2015.

farmflutningar á landi.

503. mál
[15:21]
Horfa

innanríkisráðherra (Ólöf Nordal) (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég tók ekki alveg nógu vel eftir í lokin. Var hv. þingmaður að inna mig eftir því hvort ferðaþjónustuaðilum verði heimilt að aka hópum? Já, það eru (Gripið fram í.) hin svokölluðu ferðaþjónustuleyfi sem ég gerði grein fyrir í ræðu minni. (Gripið fram í.) Það er minna en átta, það er nýmæli. Það eru annars vegar ferðaþjónustuleyfi og hins vegar borgarleyfi með tuk tuk bíla, hvort tveggja er til þess að mæta aukinni ferðaþjónustu og gefa ferðaþjónustuaðilum tækifæri til að veita betri þjónustu. Ég vil taka fram að þeir þurfa líka að hafa tilskilin leyfi sem ferðaþjónustuaðilar.

Varðandi hina spurninguna getur Vegagerðin veitt sveitarfélögum, byggðasamlögum og landshlutasamtökum sveitarfélaga heimild til að veita rekstrarleyfishafa einkarétt á tilteknum leiðum. Það er gert til þess að greiða fyrir samgöngum og alltaf á grundvelli útboðs. Hugsunin er auðvitað sú að greiða fyrir samgöngum innan svæða og milli svæða. Síðan er hægt að veita leyfi á tilteknum greinum til að uppfylla lágmarksþjónustu. Það er í raun og veru hugsunin í þessu, ef ég skildi spurningu hv. þingmanns rétt. Hugsunin er fyrst og fremst sú að tryggja greiðar leiðir á milli landsvæða og eins tryggja lágmarksþjónustu á tilteknu leyfi.

Varðandi flugrútuna er það samt þannig að hægt er að fara á grundvelli almenningssamgangna frá Reykjanesbæ og upp á flugvöll og til Reykjavíkur þrátt fyrir að líka sé verið að aka með farþega frá Keflavíkurflugvelli. Það er hægt að hringtengja þá leið með öðrum hætti þrátt fyrir þann einkarétt. Þar er um að ræða að menn telja að nauðsynlegt sé, og ég er alveg á því, að tryggja öra þjónustu frá Keflavíkurflugvelli með farþega inn til Reykjavíkur.