farmflutningar á landi.
Hæstv. forseti. Markmiðið er að gera ferðatíma styttri, það er markmiðið og gera bæði ferðamönnum og okkur borgurunum tækt að nota almenningssamgöngur innan svæða og milli svæða alveg frá Raufarhöfn út á Keflavíkurflugvöll líka. Það er ekkert í frumvarpinu sem kemur í veg fyrir að ekið sé frá Keflavík um Keflavíkurflugvöll til Reykjavíkur sé það gert á grundvelli áætlunar, fyrir fram ákveðinnar áætlunar, það er ekkert sem kemur í veg fyrir það.
Ég vil árétta og ítreka tilganginn með þessu öllu. Við verðum að hafa í huga að við búum í mjög strjálbýlu landi. Það er í raun þessi eina leið sem hv. þingmaður nefndi sem hægt er að tala um að sé með öðrum hætti en aðrar leiðir, það er leiðin út á Keflavíkurflugvöll.
Annars eru almenningssamgöngur, hvort sem er innan bæjar eða milli svæða hér á Íslandi, þungar fyrir þá sem veita þjónustuna, þess vegna var lágmarksþjónustan tekin, það er mjög mikilvægt að hún sé til staðar fyrir þá sem ekki hafa tök á því að ferðast með bílum. Það er markmið með frumvarpinu að reyna að tryggja það númer eitt, tvö og þrjú.