144. löggjafarþing — 67. fundur,  17. feb. 2015.

farmflutningar á landi.

503. mál
[15:46]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla að gera hér að umtalsefni frumvarp um farþegaflutninga á landi í atvinnuskyni og vík ekki að hinu frumvarpinu sem hæstv. innanríkisráðherra mælti fyrir samhliða þessu.

Eins og fram kom í máli hæstv. innanríkisráðherra er í frumvarpinu um að ræða nokkra stefnumörkun hvað farþegaflutninga á landi varðar og ber sérstaklega að fagna þeirri breytingu sem hér er lögð til og varðar ákveðna frelsisaukningu á tilteknum sviðum farþegaflutninga.

Annað í þessu frumvarpi finnst mér hins vegar ekki til bóta, verð ég að segja, og þá kannski helst sú staðreynd sem blasir við að með frumvarpinu er ekki verið að breyta því sem helst hefur þótt mest aðkallandi að breyta. Eins og fram kemur í athugasemdum með frumvarpinu hefur það verið í vinnslu í ráðuneytinu í nokkur ár, hvorki meira né minna, og ýmsir hafa komið að því eins og maður sér. Því miður, verð ég að segja fyrir mig í ljósi umræðunnar um tilskipanir Evrópusambandsins, er því ekki að heilsa hvað þetta frumvarp varðar að ég geti vísað til þess að það sé afurð eða afleiðing slæmra tilskipana sem Íslendingar séu tilneyddir til þess að innleiða í lög, það er ekki þannig. Þetta frumvarp er algjörlega heimasmíðað, þótt vissulega sé tekið tillit til ýmissa tilskipana Evrópusambandsins. Án þess að ég ætli að fullyrða nokkuð um það sýnist mér að þær tilskipanir hafi nú frekar verið í þá áttina að auka frelsi í atvinnurekstri á þessu sviði.

Mig langar að víkja að ummælum í inngangi athugasemda við frumvarpið sem ég tel að sé kannski kjarninn í því og það sem ég geri helst athugasemdir við. Þar er sérstaklega nefnt að vonir séu bundnar við að fyrirkomulagið sem kveðið er á um í frumvarpinu sé þess eðlis að farþegaflutningar, hvort sem er heldur á vegum hins opinbera eða einkaaðila, geti þrifist og eflst hlið við hlið. Ég geri athugasemdir við það. Ég tel að það hljóti að vera markmið að einkaaðilar sinni öllum þeim farþegaflutningum á landi sem frumvarpið tekur til en ekki opinberir aðilar. Andi frumvarpsins kemur þannig fram strax í inngangi athugasemdanna og efni frumvarpsins er þar af leiðandi auðvitað í samræmi við hann.

Ég vil stuttlega víkja að einkarétti á tilteknum svæðum sem aðrir hv. þingmenn hafa fjallað um hér á undan mér. Kveðið er á um einkarétt á tilteknum svæðum með vísan til almannahagsmuna, með vísan til þeirrar staðreyndar að hvað almenningssamgöngur varðar eigi dreifðari byggðir landsins á brattann að sækja og fólk sem þar býr. Við viðurkennum það öll, það blasir við að það er ekki sami hagnaður af rekstri farþegaflutninga í dreifðustu byggðum eins og er mögulega á höfuðborgarsvæðinu. Leiðin að lausn á því vandamáli er hins vegar ekki endilega sú að skipta landinu upp í einhvers konar sérleyfissvæði og veita einkaleyfi á tilteknum leiðum. Menn verða bara að horfast í augu við það hver kostnaðurinn er við farþegaflutninga á þessum svæðum, með tilliti til undanfarandi greiningar á þörf á slíkum farþegaflutningum. Ef það er vilji til þess að hið opinbera standi straum af þeim kostnaði á einhvern hátt þá tel ég að gera eigi það með gagnsærri hætti en veitingu sérleyfa eftir útboði eins og kveðið er á um í frumvarpinu. Sá kostnaður þurfi að liggja á borðinu og einkaaðilum sé greitt fyrir þá farþegaflutninga samkvæmt því. Í sömu grein, 14. gr. frumvarpsins, er einmitt vísað til þess að einkarétti skuli úthlutað með útboði. Hins vegar er ekki tilgreint, eftir því sem ég fæ best séð, í frumvarpinu sjálfu til hversu margra ára eða hversu langs tíma einkarétti sé úthlutað með þessum hætti. Þetta tel ég að þurfi að minnsta kosti að skoða sérstaklega vel og ég vænti þess að nefndin sem fær málið til umfjöllunar geri það.

Ég vil líka sérstaklega fjalla um V. kafla frumvarpsins sem varðar leigubifreiðar. Ég hefði talið æskilegt, ef ekki nauðsynlegt, úr því að hér er lagt fram svona fullmótað og yfirgripsmikið frumvarp, að hér hefði orðið meiri breyting á fyrirkomulagi í rekstri leigubifreiða á Íslandi á því herrans ári 2015. Hér er allt með miklum skrifræðisblæ, það er mikið skrifræði og mikið regluverk í kringum þennan einfalda rekstur. Ég nefni að í 19. gr. er fjallað um veitingu atvinnuleyfis sérstaklega, því er áfram við haldið að atvinnuleyfi þurfi til þess að keyra leigubíla og það er ekki veitt nema að undangengnu námskeiði, sem Samgöngustofa heldur. Og fari menn og standist eitthvert námskeið um leigubílaakstur er ekki svo að þeir geti gengið að því og haldið því alla sína ævi heldur virðist vera svo að það renni út og menn haldi ekki áunnum réttindum alla ævina. Þá er gert að skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis að leigubílaakstur sé aðalatvinna viðkomandi og gerð krafa um að sá er hyggist stunda leigubílaakstur hafi aðstöðu á leigubifreiðastöð, eins og þær eru skilgreindar í frumvarpinu. Þetta tel ég ekki mjög til bóta og draga úr fjölda einyrkja og einstaklingsframtaki á þessu sviði og mikil höft sett á þennan einfalda rekstur.

Alvarlegast í frumvarpinu tel ég þó vera það sem fram kemur í 21. gr. frumvarpsins, sem er um takmörkun á fjölda leigubifreiða. Það er áfram kveðið á um það að hér verði takmörkun á fjölda leigubifreiða. Það er auðvitað ekki útskýrt og ekki rökstutt með nokkru móti hvernig það standist að ætla að takmarka fjölda leigubifreiða að öðru leyti en því að vísað er til einhvers konar öryggiskrafna, að öryggi manna felist í því að hér sé leigubifreiðafjöldi takmarkaður. Þetta tel ég afar óheppilegt og tel að þennan kafla mætti í rauninni endurskoða í heild sinni.

Þá vil ég í lokin víkja stuttlega að 32. gr. frumvarpsins, um hið svokallaða borgarleyfi, og var komið inn á það í ræðum annarra hv. þingmanna. Það virðist vera svo, eins og það er orðað í athugasemd um þessa grein og mönnum hefur þótt tilefni til þess að taka sérstaklega á því, að ekki hefur verið til staðar í lögum nein heimild til að reka léttvagna eða svokallaða tuk-tuk í ferðaþjónustu til skoðunarferða innanbæjar. Þetta telja frumvarpshöfundar greinilega afleitt og af þessu má leiða að menn telji þá mögulega óheimilt að reka slíka þjónustu í dag. Því er hér sett inn 32. gr., þar sem Samgöngustofu er heimilt að veita sérstakt leyfi til skoðunar- og kynnisferða á vistvænum farartækjum öðrum en bifreiðum, svo sem þessum svokölluðu tuk-tuk vögnum, sem ég verð að viðurkenna að ég átta mig ekki alveg á hverjir eru. En mér dettur nú bara strax í hug að miðað við þetta sé óheimilt í dag að bjóða upp á skoðunarferðir á reiðhjólum, svo dæmi sé tekið og þekkt er erlendis, af því að hér er bara vikið að vélknúnum farartækjum.

Þessi grein er svolítið kjarninn í frumvarpinu, finnst mér, hér er greinilega búið að finna einhvern samgöngumáta sem ekki er sérstaklega leyfður í lögum og þar með er litið þannig á að hann sé óheimill og hafi verið óheimill hingað til og það sé óásættanlegt og þessu þurfi að koma í lög og ekki bara koma í lög og ekki bara kveða á um heldur er sérstaklega kveðið á um að heimilt sé að veita sérstakt leyfi. Það þarf þá upp frá þessu leyfi til þess að reiða mann um bæinn á reiðhjóli. Þetta stenst bara engan veginn að mínu mati.

Að þessu sögðu vil ég ítreka það sem ég nefndi í upphafi ræðu minnar að það er fagnaðarefni að í frumvarpinu er þó gert ráð fyrir auknu frjálsræði hvað tiltekna farþegaflutninga varðar. En sérstaklega með vísan til þess tel ég æskilegt að taka þá hugsun aðeins lengra og treysta einkaaðilum frekar fyrir farþegaþjónustu og fyrir forsjá á þeirri farþegaþjónustu og draga úr regluverkinu sem gildir um farþegaflutninga á landi í atvinnuskyni.