144. löggjafarþing — 67. fundur,  17. feb. 2015.

farmflutningar á landi.

503. mál
[16:02]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. innanríkisráðherra fyrir viðbrögð hennar við ræðunni. Ég hefði gaman af að varpa einni stuttri spurningu til hæstv. innanríkisráðherra af þessu tilefni til að einfalda frumvarpið eða málið kannski, koma því niður í eitt atriði.

Teldi hæstv. innanríkisráðherra frumvarpið verða miklu verra ef til dæmis 32. gr., sem varðar tuk-tuk vagnana svonefndu, væri ekki inni í frumvarpinu?