144. löggjafarþing — 67. fundur,  17. feb. 2015.

jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku.

107. mál
[17:48]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Það má deila um ýmislegt og líka það hvar breiðu bökin eru. Það hefur verið sagt að stóriðjan fái rafmagnið á mjög lágu verði, þess vegna hafi verið ásókn í það hjá stórfyrirtækjum að koma hingað til lands, þ.e. vegna þess að orkuverðið er mjög lágt. Stóriðjan hefur borið þetta gjald sem er í raforkuskattinum, sem er umhverfis- og auðlindagjald, og er tæp 0,13% og hefur ekkert kveinkað sér undan því. Það gjald mundi lækka því að það þarf ekki 2,2 milljarða, eins og við fáum út úr því gjaldi, til að jafna til viðbótar að fullu húshitunarkostnað í landinu. Þannig gætum við stigið skrefið til fulls. Við höfum verið að ræða þessi mál hér á þingi til fjölda ára og gengið allt of hægt að gera þetta þó að viljinn hafi verið fyrir hendi.

Nú er verið að tala um að fara þessa leið sem meiri hlutinn leggur til, að þetta sé eingöngu jöfnun innan dreifiveitna, sem ég tel vera mjög óréttláta og koma illa við margar byggðir og mörg fyrirtæki. Þegar það er komið inn í kerfið þá líta menn þannig á að ríkið eigi að spara sér þær 240 milljónir sem það nýtir núna í niðurgreiðslu á dreifingu á raforku. Ætti ríkið þá ekki strax að leggja þá upphæð í niðurgreiðslu á húshitunarkostnaði ef eins ríkur vilji er til þess að ganga í það verk og menn vilja vera láta? Ég er því miður hrædd um að það verði ekki sýnt í verki við gerð fjárlaga. Nógu erfitt var að ná fram aðgerðum til jöfnunar í síðustu fjárlögum og var frekar lagður skattur á heitt vatn og rafmagn til að auka álögur á fólk á landsbyggðinni.