144. löggjafarþing — 68. fundur, 18. feb. 2015.
vísun máls til nefndar.
Reynt er að fara eftir reglum varðandi verkefni nefnda þegar verið er að vísa málum til einstakra nefnda. Forseti hefur í sjálfu sér ekki skoðað þetta tiltekna mál sérstaklega en mun nú gera það en vill þó taka fram að það ræðst í raun og veru ekki af því hvaða ráðherra fer með málaflokk, heldur fer það eftir því hvaða verkefni heyra undir einstakar nefndir. Forseti mun kynna sér þetta mál betur til að geta farið yfir það með gleggri hætti efnislega.