144. löggjafarþing — 68. fundur,  18. feb. 2015.

vísun máls til nefndar.

[15:05]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Af því að hér er rætt um með hvaða hætti ég vísaði máli sem ég mælti hér fyrir til nefndar er rétt að taka fram að öllum var fullfært að koma í pontu og gera athugasemdir við það í gær. Um er að ræða mál sem ég tel varða jafnrétti og eiga fullt erindi til allsherjar- og menntamálanefndar.