144. löggjafarþing — 68. fundur,  18. feb. 2015.

vísun máls til nefndar.

[15:05]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf):

Herra forseti. Fólk getur haft sínar skoðanir á því hvar mál eigi að vera. Það er orðin frekar þreytandi endurtekning hér að mál eru send þangað sem pólitísku vindarnir eru taldir blása rétt. Ég tel alls ekki svo vera í þessu tilfelli. Hv. þingmaður hefur fært rök fyrir því af hverju hún telji málið eiga heima í allsherjar- og menntamálanefnd. Ég vil bara benda á að það er mjög óheppilegt að ekki séu nokkuð fastar skorður á því hvernig með þessi mál er farið, að hafi þingfundaskrifstofa verið með aðra skoðun á málinu sé farið yfir það og jafnvel gefinn kostur á að greiða atkvæði um slíkt. Við erum ekki alltaf í salnum þegar málum er vísað til nefnda. Þetta mál gæti alveg eins heyrt undir sveitarstjórnarmál eða félagsmál.