144. löggjafarþing — 68. fundur,  18. feb. 2015.

vísun máls til nefndar.

[15:06]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vill af þessu tilefni segja að það heyrir til undantekninga að það sé ágreiningur um það í hvaða nefndir einstök mál fari. Þegar verið er að taka ákvörðun um það byggist það yfirleitt á tillögu þess sem mælir fyrir málinu. Þingfundaskrifstofa fer yfir það og auðvitað er horft til þeirra verkefna sem heyra undir einstakar nefndir þegar tekin er ákvörðun um hvert málum er vísað.