útreikningur skuldaleiðréttingar og frestun nauðungarsölu.
Herra forseti. Þá vil ég bara hvetja innanríkisráðherra til að ganga rösklega í það mál. Hún hefur sýnt síðan hún kom hingað til þings að hún er röggsöm. Hún gengur í málin þegar þau koma inn á borð til hennar og klárar þau. Því fyrr, því betra. Fólk er mjög áhyggjufullt um stöðu sína enda ekki skrýtið, þetta er dýrasta eign fólks, heimili þess og þetta gæti raunverulega forðað því frá því að missa eignina til þriðja aðila af því að þeir frestir sem hafa verið veittir hafa ekki verið frestir á nauðungarsölu beint, það var ekki síðast. Fyrst var það þannig en síðan var það frestun á lokaafhendingu. Ef þessi frestur rennur út í sandinn án þess að hann verði framlengdur og fólk hefur ekki fengið algjörlega niður á blað hvað það fær út úr leiðréttingunni getur það misst heimili sitt að ósekju og það er óafturkræft ef það missir það til þriðja aðila. Síðustu frestir þýddu bara að það var alveg á lokametrunum að missa það.