144. löggjafarþing — 69. fundur,  24. feb. 2015.

kjaraviðræðurnar fram undan.

[13:39]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Það berast aðeins misvísandi tónar frá forsvarsmönnum ríkisstjórnarinnar þessa dagana vegna þeirra kjaraviðræðna sem eru fram undan. Hæstv. forsætisráðherra hefur talað mjög skýrt fyrir því að hann vilji bæta kjör lág- og millitekjuhópa. Hann hefur meira að segja tekið það fram í báðum áramótaávörpum sínum að mikilvægt sé að skoða stöðu lægst launuðu hópanna.

Nýlega barst hæstv. forsætisráðherra bréf frá formanni Eflingar þar sem hann var spurður út í afstöðu sína í þeim kjaraviðræðum sem eru fram undan. Ég ætla ekki að gera það bréf sérstaklega að umræðuefni en mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra út í það svar sem hann birti undir yfirskriftinni „Að takast á við velgengni“. Í því segir hæstv. forsætisráðherra að hann hafi talað fyrir því að í auknum mæli verði litið til krónutöluhækkana en fer síðan yfir í það að reifa þá kaupmáttaraukningu sem hafi orðið og að óttinn við að missa hlutdeild í afrakstrinum, þ.e. batnandi efnahagsástandi, megi ekki verða til þess að minna verði til skiptanna fyrir alla. Hann klikkir út með því að segja að menn verði að kunna að takast á við velgengni jafnt sem mótlæti.

Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra, af því að hann hefur jú ítrekað talað fyrir því að við skoðum lægstu laun. Ef við skoðum kröfur þeirra stéttarfélaga þar sem lægstlaunuðu hóparnir eru, ég nefni sem dæmi kröfu Starfsgreinasambandsins sem setur fram þá kröfu að lægstu taxtar séu ekki undir 300 þús. kr., það eru ekki ósanngjarnar eða háar kröfur ef við tökum sem dæmi neysluviðmið stjórnvalda. Og ef við skoðum þá staðreynd að 10% landsmanna eru undir lágtekjumörkum og horfum líka á þá staðreynd að nægir fjármunir eru til í samfélaginu, þá snýst þetta um það hvernig þeim er útdeilt. Ég nefni líka það sem formaður VR hefur sagt, það þarf að skoða hvernig við skiptum kökunni. Þar eru líka láglaunahópar innan dyra.

Því langar mig að spyrja hæstv. forsætisráðherra: Styður hann krónutöluhækkanir, sérstaklega fyrir lægstlaunuðu hópana? Styður hann þá kröfu að lægstu taxtar séu ekki undir 300 þús. kr.? Er það (Forseti hringir.) verkefni fátækustu 10 prósentanna að takast (Forseti hringir.) á við velgengnina? Eða er það ekki fremur verkefni hinna sem hafa meira (Forseti hringir.) á milli handanna?