raforkulög.
Virðulegur forseti. „Eins og aðrir umsagnaraðilar“ er lykilsetning í svari hv. þingmanns. Það er nefnilega þannig að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis er ekki eins og hver annar umsagnaraðili í þessu máli. Það er auðvitað mjög til vansa fyrir hv. atvinnuveganefnd að hafa afgreitt málið án þess að bíða eftir því að umhverfisnefnd skili inn áliti sínu, sem er í tveimur skömmtum, annars vegar frá meiri hluta og hins vegar frá minni hluta, og bæði frekar neikvæð um málið og málsmeðferðina alla. Bæði meiri hluti og minni hluti hafa töluvert við málið að athuga. Mér finnst því hv. atvinnuveganefnd hafa farið svolítið fram úr sér í vinnslu málsins. Mér finnst af því nefndaráliti sem fylgir málinu að ekki hafi verið kafað nægilega djúpt ofan í það, ekki hefur verið hlustað nægilega vel á þær aðfinnslur sem komið hafa fram um málið. Það er lítið gert úr tilraunum til þess að bæta það.
Ég er þeirrar skoðunar eftir að hafa rétt rennt yfir málið að miklu eðlilegra væri af hv. atvinnuveganefnd að kalla málið inn aftur, ekki einu sinni eftir þessa umræðu heldur gera hlé á umræðunni og taka málið aftur inn og fara betur yfir það og athuga betur þær umsagnir sem borist hafa. Auðvitað er það þannig að atvinnuveganefnd á að gaumgæfa mjög vel það álit sem kemur frá umhverfisnefnd Alþingis þegar hún á annað borð er að biðja um að fá álit frá nefndinni, ekki bara þegar kemur að umhverfisþættinum heldur fer hún líka með málefni sveitarstjórna og fer einnig með skipulagsmál en fær ekki að segja sitt um málið áður en nefndin lýkur störfum sínum. Það segir allt um vinnulag hv. nefndar í þessum efnum, ófullnægjandi.