raforkulög.
Hæstv. forseti. Okkur greinir á þar. Ég held að hv. umhverfis- og samgöngunefnd hafi ekki verið neitt að vanbúnaði að leggja umsögn sína fram áður en fresturinn rann út. Ég tel að ekki hafi verið gert lítið úr því sem sú ágæta nefnd setti fram, en það hefði verið náttúrlega mjög til bóta ef það hefði borist í tíma og ef sú ágæta nefnd hefði staðið við þann umsagnarfrest sem gefinn var.
Ekki hlustað, segir hv. þingmaður. Við teljum að þetta mál sé ágætlega fram borið og það horfi mjög til bóta og erum þess vegna kvíðalausir í því að leggja það fram eins og hér er gert.