raforkulög.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Sá sem hér stendur er ekki að leita sér að skálkaskjóli. Ég vil bara minna á hversu lengi það hefur beðið að hægt sé að fara með línu frá Blönduvirkjun og austur um. Hversu lengi hefur það beðið? Það var ekki fyrr en ég kom hér inn á þing, fyrir tæpum tveimur árum, að ég komst að því að Blönduvirkjun hefur aldrei verið keyrð á fullu afli vegna þess að ekki er hægt að flytja frá henni orkuna. Finnst þingmanninum þetta boðlegt?
Ég veit að hann er unnandi náttúru eins og ég er reyndar sjálfur. Ég segi: Þegar við tökum kosti til virkjana, þegar við ákveðum að taka land og umhverfi til nýtingar þá ber okkur að nýta það. Á þessum 20 árum og rúmlega það hefur orkan flætt í gegnum Blönduvirkjun án þess að vera nýtt. Það finnst mér óþolandi sóun. Þá segir maður: Ef það er svo að einstök sveitarfélög hafa setið á því ákveðinn tíma að ekki sé hægt að leggja Blöndulínu austur um, þá finnst mér það ekki þolandi ástand. Það verður að bregðast við því á einhvern hátt.
Í frumvarpinu segir að hafa skuli samráð við sveitarfélög. Það segir hér að hafa skuli samráð við hagsmunaðila. Ég ber mikla virðingu fyrir þeim aðilum sem hv. þingmaður taldi upp í ræðu sinni, hver væri staða Skipulagsstofnunar, Landverndar o.s.frv., en ég leyfi mér líka að velta fyrir mér stöðu íbúanna sem bíða eftir því að geta nýtt orkuna til góðra verka, til góðrar uppbyggingar. Ég hef enga trú á því að þetta frumvarp verði einhver ávísun á það að menn geti böðlast hér yfir land með engum fyrirvara. En við höfum bara engan tíma.