144. löggjafarþing — 69. fundur,  24. feb. 2015.

raforkulög.

305. mál
[19:36]
Horfa

Róbert Marshall (Bf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Nei, það er ekki hægt að finna neinn rökstuðning fyrir því að málið er unnið með þessum hætti. Það er svo sannarlega ekki málaflokknum til framdráttar og það er alveg rétt sem hv. þm. Svandís Svavarsdóttir segir hérna, það er eins og þetta sé frá 1975. Þegar hún flutti ræðu sína áðan datt mér í hug bíómynd þar sem einhverjir félagar fara í heitan pott í skíðaparadís og spólast 25 ár aftur í tímann. [Hlátur í þingsal.] Ætli nefndin hafi farið saman í heitan pott og þetta hafi gerst og þeir hafi komið með þetta frumvarp úr þeim heita potti, [Hlátur í þingsal.] upp úr pottinum? Það nær í raun og veru ekki nokkurri átt að menn vinni þetta með þessum hætti, ég tala nú ekki um að þeir reyna ekki að svara efnislega þeirri gagnrýni sem fram hefur komið.

Það er ekki mjög stórmannlegt af nefndinni að vera ekki til svara hér í salnum, að grípa ekki til varna, að vera ekki þátttakendur í þeirri rökræðu sem hér á sér stað, að svara ekki þeim spurningum sem upp koma um málið. Það er mjög sambærilegt afgreiðslu nefndarinnar í því nefndaráliti sem hér var lagt fram. Það er engin þátttaka í samræðum. Hér er ekki verið að reyna að ljúka málinu á grundvelli bestu fáanlegu upplýsinga eða þannig að menn séu að komast að eins góðri niðurstöðu og mögulegt er. Það er eiginlega búið að ákveða það fyrir fram að þetta frumvarp sé stórgott, að það þurfi ekkert að breyta því á nokkurn hátt og það skuli bara fara í gegn eins og það er. Gerðar eru tvær minni háttar breytingar sem lúta að orðalagi. Engar efnislegar breytingar eru gerðar á frumvarpinu, ekkert mark er tekið á athugasemdum, engum rökstuðningi er til að dreifa til þess að menn geti áttað sig á því (Forseti hringir.) á hvaða ferðalagi nefndin er. Hún er í miklum ógöngum (Forseti hringir.) í þessu máli.