raforkulög.
Virðulegi forseti. Þetta er önnur hlið á sama peningi. Það er auðvitað það hvernig við skrifum og hvernig við högum hér lagasetningu. Hér er alveg gríðarlega stórt mál undir, kerfisáætlun til margra ára, og þá er spurning hvernig við viljum haga undirbúningnum. Ég er búin að ræða það hér að mér finnst skorta algjörlega á lýðræðislega aðkomu sem til að mynda mætti tryggja með umfjöllun í þinginu. Í jafn stóru máli þá vekur það furðu, og ég tek undir það með hv. þingmanni, að hafa reglugerðarheimild sem er í raun og veru algjörlega opin hvað varðar það hvernig samráði skuli háttað, hvernig nákvæmlega greining á valkostum skal fara fram.
Eins og ég er margoft búin að ítreka þá finnst mér ekki nægur skilningur á því hversu gríðarlega viðkvæmt mál við erum með í höndunum, mál sem er líklegt til þess að valda frekari ágreiningi. Ef við horfum bara á söguna og þær miklu deilur sem hér hafa verið um umhverfis- og náttúruverndarmál ætti það að vera vilji stjórnvalda að klappa ferlið í kringum slík mál í stein eftir því sem frekast er unnt þannig að ekki séu uppi vafamál þegar á hólminn er komið varðandi hvernig að framkvæmdum á að standa.
Síðan er það mitt almenna mat, og þar hafa menn bara ólík sjónarmið, að í mörgum tilvikum, sérstaklega í svona stórum umdeildum málum, sé betra að hafa lagatextann lengri og ítarlegri og færri reglugerðarheimildir. Annað á kannski við í smærri málum sem meiri sátt er um framkvæmdina á, þar er hægt að hafa reglugerðarheimildir til útfærslu. En í þessu tilfelli þurfum við að átta okkur á að við höldum á viðkvæmu máli sem er líklegt til þess að valda deilum langt inn í framtíðina.
Af því að rætt var um barnagleraugun áðan þá þurfum við líka að velta því fyrir okkur hvaða áhrif á þetta vinnulag eftir að hafa inn í framtíðina.